Skjaldborg fær Eyrarrósina

Frá vinstri: Karna Sigurðardóttir, Kristín Andrea Þórðardóttir og Helga Rakel Rafnsdóttir, aðstandendur Skjaldborgar, með Eyrarrósina 2020 (mynd: Helga Rakel Rafnsdóttir).

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, hlýtur Eyrarrósina í ár, en verðlaunin – sem nema tveimur milljónum króna – eru veitt fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar.

Skjaldborgarhátíðin hefur tvisvar áður verið tilnefnd til verðlaunanna, en þau voru veitt á Bessastöðum í dag.

Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík hafa staðið saman að verðlaununum frá upphafi, eða frá árinu 2005.

Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð. Valnefnd, skipuð fulltrúum Byggðastofnunar, Listahátíðar í Reykjavík og Flugfélags Íslands ásamt einum menningarfulltrúa á starfssvæði Byggðastofnunar tilnefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina ásamt veglegum peningaverðlaunum. Hin tvö tilnefndu verkin hljóta einnig peningaverðlaun.

Verndari Eyrarrósarinnar er Eliza Reid, forsetafrú.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR