Aðsókn á íslenskar kvikmyndir í bíó 2019 dróst mikið saman miðað við 2018 og nam tæplega 54 þúsund gestum. Samdrátturinn nemur rúmlega tveim þriðju, en þetta er ögn lakari heildaraðsókn en árið 2015. Agnes Joy er mest sótta íslenska mynd ársins.
Samtals voru 16 íslenskar kvikmyndir og heimildamyndir sýndar í kvikmyndahúsum, sem er sama tala og í fyrra.
Tíu nýjar bíómyndir litu dagsins ljós á árinu (tíu myndir 2018) og er þar meðtalin dansk/íslenska myndin Goðheimar, en tvær bíómyndir frá fyrra ári voru einnig í sýningum. Frumsýndar heimildamyndir voru 6 talsins sem er jafn mikið og 2018.
Aðsókn á íslenskar myndir 2019 nam 53.835 gestum í samanburði við 164,031 gesti 2018. Þetta er um 68% samdráttur milli ára, en heildaraðsóknin 2018 var sú mesta síðan 2000. Heildarinnkoma nam um 76 milljónum króna miðað við 240 milljónir króna árið 2018.
Hér má lesa um aðsókn á íslenskar kvikmyndir síðasta aldarfjórðunginn eða svo.
Agnes Joy er mest sótta bíómyndin en vinsælasta heimildamynd ársins er Að sjá hið ósýnilega (The Seer and the Unseen).
Hlutfall íslenskra kvikmynda af heildartekjum er 4,8%, sem er það lægsta síðan 2015.
Hér að neðan má sjá listann yfir aðsókn og tekjur á íslenskar kvikmyndir 2019. Athugað að röðun á listann er eftir aðsókn, sem gæti breytt röðinni lítillega miðað við þann lista sem FRÍSK sendir frá sér þar sem miðað er við tekjur (gerist reyndar ekki að þessu sinni).
HEITI | DREIFING | TEKJUR | AÐSÓKN |
---|---|---|---|
Agnes Joy | Sena | 19.706.353 kr. | 12.215 |
Hvítur, hvítur dagur | Sena | 16.740.614 kr. | 11.434 |
Héraðið | Sena | 15.568.942 kr. | 10.311 |
Goðheimar | Annað | 5.428.696 kr. | 4.679 |
Þorsti | Samfilm | 4.530.928 kr. | 3.784 |
Að sjá hið ósýnilega** | Bíó Paradís | 2.832.200 kr. | 2.537 |
Vesalings elskendur | Sena | 2.661.330 kr. | 2.195 |
Bergmál | Sena | 1.953.384 kr. | 1.932 |
Eden | Sena | 1.602.550 kr. | 1.432 |
Tryggð | Sena | 1.523.635 kr. | 1.610 |
Lof mér að falla* | Sena | 1.027.390 kr. | 62 |
Síðasta haustið** | Bíó Paradís | 571.600 kr. | 385 |
Kaf** | Bíó Paradís | 519.200 kr. | 360 |
Taka 5 | Bíó Paradís | 464.400 kr. | 322 |
Vasulka áhrifin** | Bíó Paradís | 273.600 kr. | 180 |
Gósenlandið** | Bíó Paradís | 258.300 kr. | 156 |
Kona fer í stríð* | Sena | 250.550 kr. | 155 |
Á skjön - verk og dagar Magnúsar Pálssonar** | Bíó Paradís | 139.950 kr. | 86 |
76.053.622 kr. | 53.835 | ||
Heimild: FRÍSK | *Frumsýnd 2018, tölur 2019 | **Heimildamyndir. |