![](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2019/12/001457420-c4d3077e-fff8-4cbe-8974-0682c2a9e421.jpg?resize=696%2C392&ssl=1)
Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason vann þrenn verðlaun á Torino kvikmyndahátíðinni á Ítalíu um helgina. Klippari myndarinnar, Julius Krebs Damsbo, var viðstaddur hátíðina og tók á móti verðlaununum.
Myndin vann aðalverðlaun hátíðarinnar og þar með verðlaunafé að upphæð 18.000 evrur, ca. 2,4.milljónir króna. Einnig vann myndin AVANTI! verðlaunin sem gefa myndinni betri dreifingu á Ítalíu, sem og sérstaka dómnefndarviðurkenningu fyrir besta handrit.
Hvítur, hvítur dagur hefur nú fengið 12 alþjóðleg verðlaun frá frumsýningu í Cannes. Mikið ferðalag er einnig framundan hjá myndinni en hún kom nýlega í kvikmyndahús í Noregi og Sviss, og mun hefja sýningar í Danmörku 5.desember.