Keppt í gerð gamanmynda á Gamanmyndahátíð

Arnór Pálmi Arnarson.

Gamanmyndahátíð Flateyrar verður haldin í fjórða sinn dagana 19.-22. september. Þar verða sýndar gamanmyndir frá öllum heimshornum auk þess sem boðið verður upp á leiksýningar, uppistand, tónleika og matarveislur. Einnig gefst tækifæri til að gera gamanmynd á 48 stundum og sýna hana á hátíðinni.

Í gamanmyndakeppninni fá þátttakendur 48 klst. til að fullgera gamanmynd frá hugmynd að frumsýningu. 48 stunda kvikmyndakeppnir hafa verið haldnar víða um heim, en nú í fyrsta sinn á Íslandi.

Fyrirkomulagið er svona:

  • Liðin skulu skipuð þremur þátttakendum, hvert lið fær ókeypis gistingu fyrir þrjá á Flateyri og þrjú hátíðararmbönd á Gamanmyndahátíðina (liðum er þó heimilt að styðjast við fleiri aðstoðarmenn og leikara).
  • Miðvikudaginn 18. september verður leikstjórinn Arnór Pálmi Arnarson, leiðbeinandi keppninnar, með örnámskeið í gamanmyndagerð. Að því loknu verður þema ársins kynnt og klukkan byrjar að telja niður. Arnór Pálmi verður liðunum innan handar bæði varðandi handritsgerð, tökur og klippingu á meðan á ferlinu stendur.
  • Fullkláruðum gamanmyndum þarf að skila inn föstudagskvöldið 20. september.
  • Liðin þurfa sjálf að útvega sér tökubúnað en mögulegt verður að komast í klippitölvur Lýðskóla Flateyrar.
  • Myndirnar verða að því loknu sýndar á Gamanmyndahátíðinni þar sem fyndnasta 48 stunda gamanmyndin verður verðlaunuð.

Til að sækja um þátttöku þarf að fylla út umsóknarform hér. Umsóknarfrestur er til 5. september.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR