[Stikla] Heimildamyndin „Kaf“ frumsýnd 5. september

Rammi úr Kaf.

Heimildamyndin Kaf eftir Elínu Hansdóttur, Önnu Rún Tryggvadóttur og Hönnu Björk Valsdóttur verður frumsýnd 5. september í Bíó Paradís. Í myndinni er fylgst með hvítvoðungum stálpast og þroskast og því hvernig foreldrar kynnast börnum sínum í gegnum upplifun í vatni.

Kaf veitir innsýn í heim Snorra Magnússonar þroskaþjálfara, sem hefur helgað líf sitt kennsluaðferðum í ungbarnasundi. Myndin er tekin upp í Skálatúnslaug í Mosfellsbæ þar sem Snorri hefur byggt upp litríkan heim milli fjalls og fjöru sem skýlir foreldrum og börnum fyrir veðri og vindum allan ársins hring. Myndin fjallar einnig um fyrstu mánuðina í lífi barna, árin sem enginn man. Þessi aldur hefur ekki mikið verið kannaður en nýjustu rannsóknir sýna hins vegar fram á að ungabörn búa yfir hæfileika til að tjá sig og leiða samskipti mun fyrr en áður var haldið.

Á Íslandi ríkir mikil sundmenning, þar sem ekki skortir heitt vatn, og geta börnin verið lengur í lauginni en erlendis. Hlutfall barna á Íslandi sem fara í ungbarnasund er því hærra en annars staðar í heiminum. Snorri hefur á undanförnum 28 árum, kennt þúsundum barna ungbarnasund og þannig seitlar hans vinna út í allt samfélagið.

Leikstjórar eru Elín Hansdóttir, Hanna Björk Valsdóttir og Anna Rún Tryggvadóttir. Framleiðandi er Hanna Björk Valsdóttir fyrir Akkeri Films. Bergsteinn Björgúlfsson sá um kvikmyndatöku, Björn Viktorsson er hljóðhönnuður og tónlistin var í höndum dönsku hljómsveitarinnar Efterklang.

Akkeri Films er nýtt framleiðslufyrirtæki sem einbeitir sér að framleiðslu heimildamynda. Fyrstu myndir Akkeri Films í fullri lengd eru Kaf (2019) og Síðasta haustið (2019) eftir Yrsu Roca Fannberg sem var heimsfrumsýnd á Karlovy Vary hátíðinni í júní 2019. Fleiri myndir eru í framleiðslu.

Kaf var heimsfrumsýnd á Salem Film Festival í Bandaríkjunum í mars sl. og hefur ferðast á kvikmyndahátíðir í Evrópu, Ástralíu og Mexíkó þar sem KAF hefur hlotið einróma lof áhorfenda. Hún var m.a. valin á Sheffield Doc Fest í Bretlandi sem er ein af stærstu heimildamyndahátíðum í heimi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR