Greining | Vinsælustu bíómyndirnar 2018

Árið 2018 var mjög gott fyrir íslensk kvikmyndahús og var tekjuaukning um 6,4% frá árinu áður en samtals voru seldir miðar í kvikmyndahús fyrir kr. 1.688.453.577 á árinu 2018. Þá sóttu tæplega 74.000 fleiri gestir kvikmyndahús á árinu 2018 en 2017, sem er tæplega 5,4% fjölgun.  Á síðasta ári lögðu 1.445.445 gestir leið sína í kvikmyndahús landsins.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá FRÍSK og þar segir ennfremur:

Kvikmyndin Mamma Mia! Here we go again var tekjuhæsta kvikmynd ársins með tæpar 96,3 milljónir í tekjur en samtals sá 79.861 gestir kvikmyndina með lögum Abba-flokksins sænska. Þess má geta að fyrri kvikmyndin Mamma  Mia! var líka fjölsóttasta mynd ársins 2008 þegar að 119.000 manns sáu myndina, en kvikmyndin Titanic er eina myndin sem sótt hefur verið af fleiri gestum í íslenskum kvikmyndahúsum síðan mælingar hófust.

Næstvinsælasta mynd ársins var Lof mér að falla, sem tæplega 53.000 gestir keyptu sig inn á, og voru tekjur af myndinni rúmar 87 milljónir króna. Lof mér að falla er aðsóknarmesta íslenska kvikmyndin síðan Svartur á leik var sýnd í kvikmyndahúsunum árið 2012. Þriðja vinsælasta mynd ársins var svo Avengers – Infinity War, sem halaði inn tæpar 74,6 milljónir króna með rétt rúmlega 57.000 gesti. Athygli vekur að meðal sex efstu kvikmynda eru þrjár myndir með tónlistarþema (Mamma Mia, A Star is Born og Bohemian Rhapsody).

Íslenska bíóárið var mjög gott og höluðu íslenskar kvikmyndir inn 240 milljónum á árinu 2018 með rúmlega 164.000 gestum. Hlutfall íslenskra kvikmynda var 13,3% af tekjum kvikmyndahúsanna, sem er besti árangur íslenskra kvikmynda síðan árið 2014 (sem þá var einnig 13,3%). Aðrar myndir gerðu það  gott og þannig voru hvorki fleiri né færri en fjórar íslenskar kvikmyndir meðal tuttugu fjölsóttustu kvikmynda ársins. Víti í Vestmannaeyjum var níunda vinsælasta mynd ársins með tekur upp á 47,7 milljónir (35.465 gesti), teiknimyndin Lói – þú flýgur aldrei einn var fimmtánda vinsælasta með tekjur upp á 29,9 milljónir (24.185 gesti) og Kona fer í stríð var í sextánda sæti með tæpar 29,4 miljónir í tekjur og 19.908 gesti.

Samtals voru 16 íslenskar kvikmyndir og heimildarmyndir sýndar í kvikmyndahúsum, sem er einni mynd færri en árið á undan.

Hlutur bandarískra kvikmynda á markaðnum var sambærilegur og árið á undan eða 84,3% af tekjum.  Fyrir utan bandarískar og íslenskar kvikmyndir voru það pólskar kvikmyndir sem náðu mestri aðsókn hér á landi en tæplega 10.000 gestir sáu kvikmyndir frá Póllandi.

Meðalverð bíómiða í íslenskum kvikmyndahúsum stóð nánast í stað á milli ára og var 1.242 kr. á síðasta ári en 1.231 árið á undan.

Alls voru 169 kvikmyndir teknar til almennra sýninga í kvikmyndahúsum, sem er þremur færri en árið á undan.

Lista yfir tuttugu vinsælustu kvikmyndirnar á árinu 2018 má sjá hér að neðan. Þess má geta að vinsældum mynda er ávallt raðað eftir tekjum en ekki aðsókn. Þetta er gert til þess að hlutfall boðsmiða eða afsláttarmiða í umferð hafi ekki áhrif á uppröðun kvikmynda.

(Byggt á fréttatilkynningu frá FRÍSK)

20 tekjuhæstu kvikmyndirnar 2018

RöðNafnDreifingTekjurAðsókn
1Mamma Mia! Here We Go AgainMyndform96.265.552 kr.79.861
2Lof mér að fallaSena87.008.153 kr.52.901
3Avengers – Infinity WarSamfilm74.566.452 kr.57.018
4The Incredibles 2Samfilm67.184.638 kr.57.916
5A Star is Born (2018)*Samfilm56.886.735 kr.45.097
6Bohemian Rhapsody*Sena55.524.759 kr.42.167
7Black PantherSamfilm52.332.130 kr.39.739
8Deadpool 2Sena48.157.369 kr.37.797
9Víti í VestmannaeyjumSamfilm47.712.654 kr.35.465
10Mission Impossible FalloutSamfilm40.943.483 kr.32.175
11The GrinchMyndform40.868.339 kr.40.019
12Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald*Samfilm40.768.989 kr.31.43
13Jurassic World: Fallen KingdomMyndform36.058.203 kr.29.202
14Johnny English Strikes AgainMyndform34.845.829 kr.28.611
15Lói – Þú flýgur aldrei einnSena29.908.088 kr.24.185
16Kona fer í stríð*Sena29.379.872 kr.19.908
17VenomSena29.238.723 kr.22.124
18Jumanji (2017)Sena26.990.055 kr.20.79
19Hotel Transylvania 3Sena26.122.724 kr.25.539
20Ant-Man and the WaspSamfilm25.695.845 kr.20.298
 *Kvikmynd enn í sýningu svo ekki er um heildartölur að ræða. | HEIMILD: FRÍSK

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR