Margrét Örnólfsdóttir hefur verið tilnefnd til handritsverðlauna Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins fyrir Flateyjargátuna. Verðlaunin eru veitt á Gautaborgarhátíðinni sem hefst í lok janúar, fyrir besta handritið í flokki sjónvarpsþáttaraða á Norðurlöndum.
Þetta er þriðja árið í röð sem Norræni sjóðurinn veitir verðlaun fyrir framúrskarandi handrit. Sigurvegarinn verður tilkynntur við hátíðlega athöfn á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg þann 30. janúar 2019. Dómnefndina í ár skipa finnska leikkonan Laura Birn, sænski leikarinn Alexander Karim, blaðamaðurinn og framleiðandinn Christina Jeurling Birro og breski ráðgjafinn og framleiðandinn Justin Judd.
Flateyjargátunni er leikstýrt af Birni B. Björnssyni og framleidd af Reykjavík Films og Sagafilm. Þáttaröðin var frumsýnd á RÚV í nóvember og hafa þættirnir þegar verið seldir til allra Norðurlandanna. Sky Vision er dreifingaraðili Flateyjargátunnar á heimsvísu.