„Víti í Vestmannaeyjum“ fær tvenn verðlaun í Þýskalandi

Bragi Þór Hinriksson og Lúkas Emil Johansen með verðlaunin.

Víti í Vestmannaeyjum í leikstjórn Braga Þórs Hinrikssonar hlaut um helgina tvenn verðlaun á Schlingel barnakvikmyndahátíðinni í Chemnitz í Þýskalandi. Bragi Þór veitti verðlaununum viðtöku ásamt Lúkas Emil Johansen, sem fer með aðalhlutverkið.

Myndin vann Chemnitz verðlaun alþjóðlegrar dómnefndar hátíðarinnar og hlaut einnig sérstök dómnefndarverðlaun barnadómnefndar hátíðarinnar. Um er að ræða fyrstu verðlaun myndarinnar. Schlingel hátíðin er sérstaklega fyrir börn og ungmenni og fór fram í Chemnitz í Þýskalandi frá 1. – 7. október.

Alþjóðleg dómnefnd hátíðarinnar hafði eftirfarandi að segja um veitingu Chemnitz verðlaunanna:

„Barnamyndirnar sem við sáum á hátíðinni gáfu frá sér geislandi lífsorku. Börnin vita hvað þau þurfa að gera, eru með markmið og viljastyrk til að uppfylla markmiðin. Þetta er öfugt við flestar myndir um fullorðið fólk. Fullorðna fólkið upplifir tilvistarkreppur. Þeim líður oft eins og það sé lamað og utangátta, það stendur í skilnaði eða glímir við geðsjúkdóma. Aftur á móti hafa börn í kvikmyndum fremur jákvæð viðhorf og standa saman, eru uppfull af orku og styrk, eru mestmegnis bjartsýn og leitast eftir sátt og samlyndi. Þetta er nákvæmlega þar sem fyrir augu ber í Víti í Vestmannaeyjum. Hinn 10 ára gamli Jón, sem Lúkas Emil Johansen leikur, ferðast á hið kunna Orkumót í Vestmannaeyjum. Hann leitast eftir því að hjálpa liði sínu, Fálkunum, og berst stöðugt fyrir því að ná markmiðum sínum þrátt fyrir erfiða andstæðinga og skyndilegt eldgos sem veldur því að eyjan verður undirlögð yfirþyrmandi gráum skýjum. Kvikmynd um kraft fólks, kraft náttúrunnar og kraft kvikmyndagerðar.“

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR