Kvikmyndamiðstöð Íslands auglýsir eftir kvikmyndaráðgjöfum og skrifstofumanneskju.
Í tilkynningu kemur eftirfarandi fram:
Kvikmyndaráðgjafar skulu hafa staðgóða þekkingu eða reynslu á sviði kvikmynda og mega ekki hafa hagsmuna að gæta varðandi úthlutun eða gegna störfum utan Kvikmyndamiðstöðvar sem tengjast íslenskri kvikmyndagerð meðan á ráðningartíma stendur.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi frá viðurkenndum kvikmyndaskóla eða hafa a.m.k. 3ja ára starfsreynslu af einhverri af lykilstöðum í kvikmyndagerð. Krafist er góðrar íslensku- og enskukunnáttu, auk þess er kunnátta í einu norðurlandamáli kostur. Mikilvægt er að kvikmyndaráðgjafar hafi góða samskiptahæfileika.
Um tímabundna ráðningu er að ræða og ráðningartími nemur allt að tveimur árum í senn. Um hlutastarf getur verið að ræða.
Eins auglýsir Kvikmyndamiðstöð skrifstofustarf í lifandi alþjóðlegu umhverfi. Leitað er að ábyrgum, skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem getur unnið jafnt sjálfstætt sem og með öðru fólki.
Sjá nánar hér.