Vetrarbræður, hin dansk/íslenska kvikmynd Hlyns Pálmasonar, vann nýverið til tvennra verðlauna. Hún var valin besta kvikmyndin á Molodist – alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Kænugarði í Úkraínu og Hlynur Pálmason var valinn besti leikstjórinn á Transilvaníu kvikmyndahátíðinni í Cluj-Napoca í Rúmeníu.
Þetta kemur fram á vef Kvikmyndamiðstöðvar og þar segir ennfremur:
Vetrarbræður hefur nú unnið til 18 alþjóðlegra verðlauna síðan hún var heimsfrumsýnd á hinni virtu Locarno kvikmyndahátíð í Sviss í ágúst síðastliðnum, þar sem fjögur verðlaunanna unnust.
Myndin hefur einnig unnið til níu Robert verðlauna, tvennra Bodil verðlauna í Danmörku, auk Dreyer verðlaunanna í sama landi.
Vetrarbræður gerist í einangraðri verkamannabyggð á köldum vetri. Myndin segir frá bræðrunum Emil og Johan og þeirra venjum og við verðum vitni að því er ofbeldisfullar deilur brjótast út milli bræðranna og annarrar fjölskyldu á vinnustaðnum.
Næst á dagskrá hjá Hlyni er áframhaldandi þróun sinnar næstu kvikmyndar, Hvítur, hvítur dagur, sem áætlað er að fari í tökur í ágúst á þessu ári.
Hvítur, hvítur dagurvann ARTE verðlaunin á CineMart, samframleiðslumarkaði hinnar virtu Rotterdam kvikmyndahátíðar, var valin í Nordic Distribution Boost vinnustofuna á vegum Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins og tók einnig þátt í samframleiðslumarkaði hinnar virtu Berlinale kvikmyndahátíðar í Berlín, þar sem hún var eitt af einungis tveimur verkefnum sem voru valin í svokallaða Rotterdam-Berlinale Express.
Sjá nánar hér: Vetrarbræður hlýtur verðlaun í Úkraínu og Rúmeníu