Stuttmyndin Atelier eftir Elsu Maríu Jakobsdóttur hlaut í gær sérstaka viðurkenningu í flokki skólamynda á Aspen Film Shortsfest í Bandaríkjunum. Myndin var auk þess valin „Vimeo Staff Pick“ og er því nú til sýnis í heild sinni á Vimeo, þar sem yfir 30 þúsund hafa horft á hana fyrsta sólarhringinn. Skoða má myndina hér.
Atelier er útskriftarmynd Elsu Maríu frá Danska kvikmyndaskólanum. Myndin hlaut Edduverðlaunin 2018 sem stuttmynd ársins.