„Bergmál“ Rúnars Rúnarssonar valin á Cannes Atelier

Bergmál, nýjasta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar sem er nú í þróun, er eitt af fimmtán verkefnum sem hefur verið valið til þátttöku á Cannes Atelier sem er vettvangur fyrir leikstjóra og framleiðendur verkefnanna sem miðar að því að hjálpa við taka næstu skref í að koma verkefninu af stað, t.a.m. með því að standa fyrir fundum með mögulegum fjármögnunaraðilum.

Þetta kemur fram á vef Kvikmyndamiðstöðvar:

Cannes Atelier er partur af aðalhluta Cannes kvikmyndahátíðarinnar og mun fara fram frá 10. – 16. maí. Er þetta í fyrsta skipti sem íslensk mynd tekur þátt í þessum hluta hátíðarinnar.

Cannes kvikmyndahátíðin er Rúnari að góðu kunn þar sem myndir hans hafa tvisvar verið valdar til keppni. Stuttmyndin Smáfuglar var valin til þátttöku í aðalkeppni stuttmynda árið 2008, stuttmyndin Anna var valin til þátttöku í Director‘s Fortnight keppni hátíðarinnar árið 2009 og kvikmyndin Eldfjall var sömuleiðis valin til þátttöku í Director‘s Fortnight árið 2011.

Rúnar byrjaði að láta að sér kveða innan kvikmyndaheimsins þegar stuttmyndin Síðasti bærinn var tilnefnd til Óskarverðlauna árið 2006. Síðan þá hafa myndir eftir hann hlotið yfir eitthundrað alþjóðleg kvikmyndaverðlaun og verið sýndar á helstu kvikmyndahátíðum heimsins.

Bergmál er ljóðræn kvikmynd, um íslenskt samfélag, sem byrjar á aðventunni í aðdraganda jóla og endar á nýársdag.

Myndin er framleidd af Nimbus Ísland, Pegasus, Nimbus Films og Halibut.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR