Aðsókn | „Reynir sterki“ með hátt á annað þúsund gesti, „Undir trénu“ nálgast 42 þúsund

Reynir sterki gengur ágætlega, Undir trénu nálgast 42 þúsund gesti.

Í vikunni sáu 552 Reyni sterka, en alls hafa 1,873 séð myndina eftir þrjár sýningarhelgar. Myndin er í áttunda sæti.

Undir trénu er í 11. sæti aðsóknarlistans eftir 12 vikur. 291 sáu hana í vikunni en heildarfjöldi gesta nemur nú 41,839 manns.

Heimildamyndina Varnarliðið – Kaldastríðsútvörður sáu 91 í vikunni en heildarfjöldi gesta nemur 372 manns.

64 sá heimildamyndina La Chana um þessa frumsýningarhelgi.

Rökkur er áfram í 19. sæti eftir fimmtu sýningarhelgi. 60 sáu hana í vikunni en alls hafa 1,692 manns séð hana frá upphafi sýninga.

Sumarbörn er í 21. sæti. 30 sáu myndina í vikunni en alls hafa 1,579 séð hana eftir eftir sjöundu sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 20.-26. nóv. 2017

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
3Reynir sterki5521,8731.321
12Undir trénu291 41,83941.548
2Varnarlið - Kaldastríðsútvörður91372 283
La Chana64 64 -
5Rökkur60 1,6921.632
5Sumarbörn30 1,579 1.549
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR