Fréttablaðið um „Reyni sterka“: Þrjóska, viljastyrkur og yfirnáttúruleg atorka

„Skemmtileg, umræðuverð og vönduð yfirferð yfir aflraunir, persónuleika og galla stórmerkilegs manns. Vel þess virði að kíkja á,“ segir Tómas Valgeirsson í Fréttablaðinu um Reyni sterka Baldvins Z og gefur fjórar stjörnur.

Í umsögn segir m.a.:

Þótt viðfangsefnið sjálft sé umhugsunarlaust merkilegt er það aldrei sjálfsagður hlutur að heimildarmynd verði það einnig af sjálfu sér. Það eru margar leiðir til þess að segja sögur af afrekum Reynis en gullnáman sem Baldvin hefur sótt í kemur í formi myndefnis sem margt hefur ekki verið sýnt áður. Þetta reynist vera helsti burðarásinn sem skrásetur söguna á glæsilegan hátt, en uppbygging, klipping, áhugaverðir viðmælendur og taumhald leikstjórans skilar ekki bara afburða vel unnu verki, heldur skín eldmóðurinn í gegn og gefur útkomunni eitthvað smávegis auka.

Baldvin daðrar að sjálfsögðu við umræður um hið yfirnáttúrulega, en annað er varla hægt. Reynir var sagður blanda saman líkamsstyrk og aðferðafræði sjónhverfingamannsins. Að sögn Reynis velti hann sér ekkert upp úr þyngdartölum eða hindrunum í raun. Ef hann setti sér fjarstæðukennt markmið var því oft náð með viljastyrknum, og mögulega aukastuðningi frá einhverju að handan.

Áhorfandinn metur það vissulega sjálfur hvort hann kaupir allar frásagnirnar, enda hljóma sumar þeirra eins og eitthvað úr lélegum reyfara. En sönnunin fyrir því fjarstæðukennda sem hann framkvæmdi opnar í rauninni allar umræður á lygilega skondinn máta. Fjölskylda Reynis og aðrir utanaðkomandi segja athyglisverðar sögur og fylgir viðmælendum oftar en ekki mikil útgeislun sem er allt annað en sjálfsögð, sama hvaða efni tiltekin heimildarmynd tekur fyrir.

Fagmaðurinn Jóhann Máni Jóhannsson skreytir myndina með flottri kvikmyndatöku á milli eldra myndefnis og lætur fínustu tónlist frá Eberg koma sér prýðilega fyrir til að betrumbæta bratt en afslappað flæði. Inn á milli piprar Baldvin myndina með stílíseruðum myndlistarbútum sem, ef eitthvað er, hefði mátt vera meira af. Myndefnið er almennt spennandi og með ýmsum leiðum (hljóðupptökum, heimamyndböndum og öðru) öðlast áhorfandinn nánast beina tengingu við Reyni. Eitthvað er um dekkri skugga í frásögninni sem hlaupið er yfir, en Baldvin er nógu skarpur til þess að liggja ekki á hinu óþarfa og það litla sem gefið er í skyn segir meira en þúsund orð þegar upp er staðið.

Nálgun Baldvins er ekki eins og eintóm froða með linnulausum lofsöng eða upptalning á hápunktum. Í staðinn pakkar hann þessu saman í snyrtilega, fræðandi og þrælskemmtilega samantekt um mann sem reyndist vera lifandi dæmi um að allt sé svo sannarlega hægt ef viljinn er fyrir hendi. Slíkt hið sama má segja um hvernig leikstjóranum tókst að þrjóskast áfram til að koma þessu í verk og hafa uppi á myndefninu, sem hefur varla verið áreynslulaust.

Sjá nánar hér: Þrjóska, viljastyrkur og yfirnáttúruleg atorka

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR