Málþingið Kvikmyndaborgin Reykjavík fór fram á vegum RIFF í gær í Norræna húsinu. Skoða má upptöku frá málþinginu hér.
Þáttakendur eru Baltasar Kormákur, leikstjóri og framleiðandi, Leon Forde blaðamaður sem rannsakað hefur áhrif kvikmynda á komu túrista til viðkomandi staða ( Screen Tourism), Sveinn Birkir Björnsson frá Film in Iceland, Thomas Gammeltoft sem stýrir kvikmyndasjóði í Kaupamannahöfn sem styrkir eingöngu myndir sem teknar eru í borginni, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Kristinn Þórðarson, formaður SÍK, Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum iðnaðarráðherra og Thierry Potok, stjórnarformaður Isold Film and TV Financing og framleiðandi og fyrrum forstjóri Babelsberg kvikmyndaversins í Berlín og MPN kvikmyndaversins í Köln. Umræðum stjórnar Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.