Málþing undir yfirskriftinni Kvikmyndaborgin Reykjavík fer fram í Norræna húsinu miðvikudaginn 4. október milli 15-17. Fjallað verður um möguleika borgarinnar til að þjónusta og efla kvikmyndagerð og kvikmyndatökur í borginni. Málþingið er hluti af bransadögum RIFF og er öllum opið.
Meðal þáttakenda verða:
- Baltasar Kormákur, leikstjóri og framleiðandi,
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri,
- Kristinn Þórðarson, formaður SÍK,
- Leon Forde, meðstjórnandi Olsberg·SPI,
- Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum Iðnaðarráðherra,
- Sveinn Birkir Björnsson frá Film in Iceland,
- Thomas Gammeltoft, forstjóri Kvikmyndasjóðs Kaupmannahafnar,
- Thierry Potok, stjórnarformaður ISOLD, framleiðandi og fyrrum forstjóri Babelsberg kvikmyndaversins í Berlín og MPN kvikmyndaversins í Köln.
Umræðum stjórnar Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, en ráðstefnustjóri er Vera Sölvadóttir.