Undir trénu Hafsteins Gunnars Sigurðssonar hefur verið valin til þátttöku í Orrizonti keppni Kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum sem er hluti af aðaldagskrá hennar. Feneyjahátíðin er stofnuð 1932 og því sú elsta sinnar tegundar, ein af hinum þremur stóru ásamt Cannes og Berlín. Hún verður haldin í 74. skiptið í ár dagana 30. ágúst til 9. september.
Frumsýningu myndarinnar á Íslandi hefur af þessum sökum verið frestað um tvær vikur og fer nú fram í fyrstu viku september, en Feneyjahátíðin gerir kröfu um heimsfrumsýningu á hátíðinni.
Undanfarin ár hafa íslenskar kvikmyndir verið að ryðja sér til rúms á hátíðinni en árið 2010 var fransk/íslenska stuttmyndin Líf og dauði Henrys Darger í leikstjórn Bertrand Mandico valin til þátttöku í Orizzonti. Everest, mynd Baltasar Kormáks var opnunarmynd hátíðarinnar árið 2015 og í fyrra tók Hjartasteinn eftir Guðmund Arnar Guðmundsson þátt í Venice Days sem er hliðarkeppni á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og vann þar til Queer Lion verðlaunanna.
Undir trénu fjallar um Agnesi sem grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífsmyndband, hendir honum út og meinar honum að umgangast 4 ára dóttur þeirra. Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna skyggir á garð nágrannanna, sem eru orðnir langþreyttir á að fá ekki sól á pallinn. Á sama tíma og Atli berst fyrir umgengni við dóttur sína verður deilan um tréð sífellt harðari. Eignaspjöll eru framin og gæludýr hverfa á dularfullan hátt þegar sögusagnir um mann með keðjusög fara á kreik.
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson (Á annan veg / 2011, París norðursins / 2014) leikstýrði og skrifaði handritið ásamt Huldari Breiðfjörð. Framleiðendur myndarinnar eru Grímar Jónsson, Sindri Páll Kjartansson og Þórir Snær Sigurjónsson fyrir hönd Netop Films á Íslandi og erlendir meðframleiðendur koma frá Danmörku, Póllandi og Þýskalandi.
Með sölu og dreifingu erlendis fer fyrirtækið New Europe Film Sales.