Ég man þig er áfram í fyrsta sæti aðsóknarlistans eftir þriðju sýningarhelgi en alls hafa nú tæplega 28 þúsund manns séð myndina.
2,872 gestir sáu myndina um helgina en alls 8,319 í vikunni. Heildaraðsókn nemur nú 27,700 gestum.