Stuttmyndin Ungar eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttur var valin besta myndin (Best European Film 2017) á European Independent Film Festival sem lauk í París í kvöld. Athygli vekur að myndin er valin besta mynd hátíðarinnar úr hópi kvikmynda af margskonar tagi, þar á meðal bíómynda. Þetta eru fjórðu alþjóðlegu verðlaun myndarinnar sem einnig var valin stuttmynd ársins á Eddunni.
Myndin var einnig valin besta íslenska stuttmyndin á Northern Wave og RIFF hátíðunum á síðasta ári.