Norræna streymisveitan Viaplay hefur fjárfest í þáttaröðinni Stellu Blómkvist sem Sagafilm framleiðir fyrir Sjónvarp Símans. Þetta er í fyrsta sinn sem Viaplay tekur þátt í íslensku sjónvarpsverkefni.
Sölufyrirtækið Red Arrow International mun kynna þáttaröðina á MIPCOM 2017, sem fram fer í haust.
Greint er frá þessu á vef Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins.