Skosk/íslenska kvikmyndin A Reykjavik Porno fer í almennar sýningar í dag. Myndin er frumraun skoska leikstjórans Graeme Maley, en hann hefur getið sér gott orð í leikhúsi á Bretlandseyjum. Hún var frumsýnd á Edinborgarhátíðinni 2016 og vann verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku á norrænu kvikmyndahátíðinni í New York síðastliðið haust.
A Reykjavík Porno fjallar um nemanda sem bregst illa við klámfengnu efni sem hann horfir á af netinu og fer af stað í hefndarleit í kalda myrkrinu í Reykjavík.
- Leikstjóri: Graeme Maley
- Handritshöfundur: Graeme Maley
- Aðalhlutverk: Ylfa Edelstein, Albert Halldórsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Tinna Sverrisdóttir
- Stjórn kvikmyndatöku: Arnar Þórisson
- Klipping: Jamie Fraser, Stefanía Thors
- Tónlist: Brian Docherty
- Aðalframleiðendur: Hlín Jóhannesdóttir, Birgitta Björnsdóttir, Eddie Dick, Arnar Benjamín Kristjánsson
Meðframleiðandi: Sólveig Guðmundsdóttir