Plakatið gerði Atli Sigursveinsson.Í gær birtist frétt á Klapptré þess efnis að kvikmyndin Snjór og Salóme yrði frumsýnd 11. nóvember næstkomandi. Þetta er rangt, frumsýning verður á fyrrihluta næsta árs. Frétt Klapptrés var byggð á úreltum upplýsingum og beðist er velvirðingar á því. Fréttin frá í gær hefur verið fjarlægð.
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.