Ellý Ármanns skrifar á Fréttanetið um Grimmd Antons Sigurðssonar. Hún gefur henni fjóra og hálfa stjörnu og segir hana vandaða og metnaðarfulla mynd sem eigi eftir að slá í gegn.
Ellý segir meðal annars:
Grimmd er frábærlega vel leikin og gleymir maður að um kvikmynd sé að ræða, hún er það raunveruleg. Tæknilega séð er myndin nánast fullkominn. Tónlistin er flott og þung í anda myndarinnar, klippingin er góð en það er kvikmyndatakan sem stelur senunni, hvernig myndavélin er ofan í andliti leikara sem ganga inn og úr ramma gefur myndinni óþægilega og kuldalega tilfinningu.
Velkomin aftur Margrét Vilhjálmsdóttir
Margrét sem hefur ekki leikið íslenskri kvikmynd síðan 2010 fer á kostum í hlutverki Eddu. Hún túlkar þetta erfiða hlutverk af miklu öryggi. Upphaflega var hlutverk Margrétar skrifað fyrir karlmann en því var breytt í konu þegar leikstjórinn frétti að Margrét væri laus, þökkum við fyrir það því þetta er með betri frammistöðum hennar á hvíta tjaldinu. Sveinn Ólafur Gunnarsson túlkar Jóhannes Schram rannsóknalögreglumann virkilega vel. Hannes Óli Ágústsson vinnur leiksigur sem einfeldingurinn Magni og Atli Rafn er æðislegur í sínu hlutverki. Aðrir leikarar, þau Salóme R. Gunnarsdóttir, Júlína Sara, Pétur Óskar Sigurðsson eru öll ung og eiga klárlega eftir að ná langt á sínu sviði.Vönduð metnaðarfull mynd sem allir ættu að sjá
Framleiðendur myndarinnar geta verið stoltir. Þeir þáðu ekki krónu úr Kvikmyndasjóði en náðu samt að skapa vandaða og metnaðarfulla mynd sem á eftir að slá í gegn hér á landi. Mynd sem allir Íslendingar einfaldlega verða að sjá í bíó.
Sjá nánar hér: Grípandi krimmi sem enginn má láta fram hjá sér fara – Fréttanetið