Eiðurinn eftir Baltasar Kormák mun keppa um Gullnu skelina, aðalverðlaun San Sebastian hátíðarinnar sem fram fer á Spáni 16. – 24. september. Myndin verður heimsfrumsýnd á Toronto hátíðinni nokkru áður og frumsýnd á Íslandi 9. september.
Fyrri mynd Baltasars, Hafið, keppti um sömu verðlaun 2002.