Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í níunda sinn helgina 21.-23. október næstkomandi. Hátíðin hefur hingað til verið haldin í Grundarfirði en í ár fer hátíðin fram í Frystiklefanum á Rifi.
Grundfirðingurinn Dögg Mósesdóttir, stjórnandi Northern Wave og Sandarinn Kári Víðisson eigandi Frystiklefans á Rifi hafa lengi stefnt að samstarfi með hátíðina, sem hefur nú ræst úr.
Umsóknarfrestur fyrir íslenskar stuttmyndir, tónlistarmyndbönd og vidjóverk rennur út 20.ágúst næstkomandi og er sótt um hér.