Rúnar Rúnarsson var valinn besti leikstjórinn fyrir mynd sína Þresti á Pula Film Festival í Króatíu sem lauk í gær.
Lilja Ósk Snorradóttir frá Pegasus, sem var meðframleiðandi myndarinnar, var viðstödd verðlaunaafhendinguna, en þetta eru 19. alþjóðlegu verðlaun myndarinnar.