Heimildarmynd um Guðmundar- og Geirfinnsmálið verður frumsýnd á fyrstu mánuðum næsta árs, en Sagafilm vinnur um þessar mundir að framleiðslu hennar ásamt Mosaic Films í Bretlandi, BBC, RÚV og bandarísku efnisveitunni Netflix.
Morgunblaðið segir frá:
Myndin mun bera nafnið Out of Thin Air og Ólafur Arnalds semur tónlist fyrir hana. Nú þegar hafa verið tekin upp viðtöl við fólk sem viðkemur málunum, enn er þó eftir að taka viðtöl við fleiri sem þekkja til málsins, að sögn Margrétar Jónasdóttur, framleiðanda hjá Sagafilm.
Alls koma um 20 manns að framleiðslunni á einn eða annan hátt og tveir þriðju hlutar þeirra eru Íslendingar. Myndin er sú fyrsta á Íslandi sem Netflix fjárfestir í á framleiðslustigi, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Sagafilm vinnur að þessu verkefni í samstarfi við breska fyrirtækið Mosaic Films, framleiðandann Andy Glynne og leikstjórann Dylan Howitt. Umsjón með rannsókn og undirbúningi hefur Ant Adane.
Sjá nánar hér: Fyrsta samstarfið við Netflix