Olaf de Fleur hefur verið ráðinn leikstjóri spennumyndarinnar Carried By Six sem byggð verður á handriti LaToya Morgan (Shameless). Barry Josephson (Bones, The Ladykillers) framleiðir.
Ólafur hefur nýlokið tökum á hrollvekjunni Hush fyrir breska og bandaríska aðila. Tökur fóru fram í Skotlandi og Bjarni Felix Bjarnason var tökumaður, en þeir Ólafur hafa starfað saman að mörgum verkefnum.
Sjá nánar hér: LaToya Morgan Inks Overall Deal With AMC, Joins ‘Into The Badlands’ | Deadline