Bandaríski kvikmyndavefurinn Deadline tíndi til á dögunum ýmsar væntanlegar kvikmyndir sem verið er að undirbúa eða filma, jafnframt því sem kynning og sala á þeim fer fram á markaðinum í Cannes. Meðal þessara verkefna er Eiðurinn í leikstjórn Baltasars Kormáks.
Deadline tínir til fjölda mynda eftir kunna leikstjóra, þar á meðal Wim Wenders, Aaron Sorkin, Steven Soderbergh, Sean Penn, Xavier Dolan, Kevin Macdonald, Phillip Noyce, Andrew Niccol og Claire Denis svo einhverjir séu nefndir.
Greinina má skoða hér: Hot Cannes Titles 2016: The Deadline List