Reykjavík Ásgríms Sverrissonar er áfram í 10. sæti aðsóknarlistans eftir aðra sýningarhelgi. Fyrir framan annað fólk Óskars Jónassonar er í því sjötta og Hrútar Gríms Hákonarsonar er áfram í sýningum.
Reykjavík fékk alls 471 gest í vikunni og þar af 214 um helgina. Myndin hefur nú fengið alls 1,635 gesti.
Fyrir framan annað fólk fékk 1,673 gesti í vikunni og þar af 697 um helgina. Myndin hefur nú fengið alls 8,165 gesti eftir fjórar sýningarhelgar.
Þá er Hrútar komin með alls 22,125 gesti eftir 43 sýningarhelgar.
Aðsókn á íslenskar myndir 14.-20. mars 2016
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
4 | Fyrir framan annað fólk | 1,673 | 8,165 |
2 | Reykjavík | 471 | 1,635 |
43 | Hrútar | 53 | 22,125 |