Tökum er nú að ljúka á kvikmynd Baltasars Kormáks, Eiðinum. Ljósmyndir sem Lilja Jónsdóttir tók af upptökum hafa verið opinberaðar á Vísi.
Í frétt Vísis segir m.a.:
Sjálfur fer Baltasar með aðalhlutverkið í henni auk þeirra Heru Hilmarsdóttur og Gísla Arnar Garðarssonar. Baltasar framleiðir myndina ásamt Agnesi Johansen og RVK Studios.
Myndin fjallar um lækninn Finn sem lendir í vandræðum eftir að dóttir hans hefur samband með hættulegum glæpamanni.
Aðalhandritshöfundur myndarinnar er Ólafur Egilsson en myndinni hefur Baltasar lýst í viðtölum sem raunverulegri útgáfu af Taken og segir sjálfsagt flesta þekkja sögur sem líkjast á einhvern hátt söguþræðinum í myndinni þar sem örvæntingarástand skapast innan fjölskyldunnar.
Myndirnar má sjá hér: Magnaðar myndir bak við tjöldin úr nýjustu mynd Baltasars