Tilkynnt var um tilnefningar til Edduverðlaunanna 2016 á blaðamannafundi í Bíó Paradís fyrr í dag. Hrútar fær flestar tilnefningar, 13 talsins. Fúsi og Þrestir fylgja fast á eftir með 12 og 11 tilnefningar hvor. Þáttaröðin Réttur fær 8 tilnefningar og Ófærð fær fjórar.
Allir Akademíumeðlimir fá nú skoðunaraðgang að öllum tilnefndum verkum og í kjölfarið verður opnað fyrir kosningu þeirra meðlima sem greiddu félagsgjöldin áður en tilkynnt var um tilnefningarnar. Kosning hefst mánudaginn 15. febrúar og lýkur 22. febrúar.
Eddan 2016, uppskeruhátíð Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA), verður haldin hátíðleg sunnudagskvöldið 28. febrúar á hótel Hilton Reykjavík Nordica. Það kvöld verður mikil veisla fyrir kvikmyndaunnendur. Á eftir Eddu kemur Óskar því Óskarsverðlaunin eru afhent sama kvöld.
Hér að neðan má sjá öll tilnefnd verk og einstaklinga.
Tilnefningar til Edduverðlauna 2016:
Barna- og unglingaefni
Klukkur um jól – Hreyfimyndasmiðjan
Krakkafréttir – RÚV
Ævar vísindamaður – RÚV
Brellur
Alexander Schepelern og Cristian Predut – Hrútar
Daði Einarsson og RVX – Ófærð
Eggert Baldvinsson, Haukur Karlsson og Jón Már Gunnarsson – Þrestir
Búningar
Eva Vala Guðjónsdóttir – Réttur
Helga Rós V. Hannam – Fúsi
Margrét Einarsdóttir og Ólöf Benediktsdóttir – Hrútar
Frétta- eða viðtalsþáttur
Kastljós – RÚV
Landinn – RÚV
Orka landsins – N4
Við öll – PIPAR\TBWA
Þú ert hér – RÚV
Gervi
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir – Fúsi
Heba Þórisdóttir – Ant Man
Kristín Júlla Kristjánsdóttir – Hrútar
Handrit
Andri Óttarsson og Þorleifur Örn Arnarsson – Réttur
Björn Hlynur Haraldsson – Blóðberg
Dagur Kári – Fúsi
Grímur Hákonarson – Hrútar
Rúnar Rúnarsson – Þrestir
Heimildamynd
Hvað er svona merkilegt við það? – Krumma film
Popp og rokksaga Íslands. Fyrri hluti – Markell
Sjóndeildarhringur – Sjóndeildarhringur
Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum – IRI
Trend beacons / Tískuvitar – Markell
Hljóð
Gunnar Óskarsson – Þrestir
Huldar Freyr Arnarson og Björn Viktorsson – Hrútar
Ingvar Lundberg og Kjartan Kjartansson – Fúsi
Klipping
Andri Steinn Guðjónsson, Olivier Bugge Coutté og Dagur Kári – Fúsi
Jacob Secher Schulsinger – Þrestir
Kristján Loðmfjörð – Hrútar
Kvikmynd
Fúsi – Sögn og RVK Studios
Hrútar – Netop Films
Þrestir – Nimbus Iceland
Kvikmyndataka
Rasmus Videbæk – Fúsi
Sophia Olsson – Þrestir
Sturla Brandth Grøvlen – Hrútar
Leikari í aðalhlutverki
Atli Óskar Fjalarson – Þrestir
Gunnar Jónsson – Fúsi
Sigurður Sigurjónsson – Hrútar
Leikari í aukahlutverki
Arnar Jónsson – Réttur
Baltasar Breki Samper – Ófærð
Ingvar E. Sigurðsson – Þrestir
Theodór Júlíusson – Hrútar
Víkingur Kristjánsson – Bakk
Leikið sjónvarpsefni
Blóðberg – Vesturport
Réttur – Sagafilm
Ófærð – RVK Studios
Leikkona í aðalhlutverki
Harpa Arnardóttir – Blóðberg
Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir – Regnbogapartý
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir – Réttur
Leikkona í aukahlutverki
Arndís Hrönn Egilsdóttir – Þrestir
Birna Rún Eiríksdóttir – Réttur
Halldóra Geirharðsdóttir – Réttur
Kristbjörg Kjeld – Þrestir
Margrét Helga Jóhannsdóttir – Fúsi
Leikmynd
Bjarni Massi Sigurbjörnsson – Hrútar
Hálfdan Pedersen – Fúsi
Sveinn Viðar Hjartarson – Réttur
Leikstjórn
Dagur Kári – Fúsi
Grímur Hákonarson – Hrútar
Rúnar Rúnarsson – Þrestir
Lífsstílsþáttur
Atvinnumennirnir okkar 2 – Stórveldið
Ferð til fjár – Sagafilm
Hið blómlega bú – Búdrýgindi
Hæpið – RÚV
Ævar vísindamaður – RÚV
Menningarþáttur
Að sunnan – Sigva media og N4
Kiljan – RÚV
Með okkar augum – Sagafilm
Toppstöðin – Sagafilm
Öldin hennar – Sagafilm
Sjónvarpsmaður
Gísli Marteinn Baldursson
Helgi Seljan
Katrín Ásmundsdóttir
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Ævar Þór Benediktsson
Skemmtiþáttur
Árið er: Söngvakeppnin í 30 ár – RÚV
Drekasvæðið – Stórveldið
Hindurvitni – Ísaland Pictures
Hraðfréttir – RÚV
Þetta er bara Spaug… stofan – RÚV
Stuttmynd
Gone – Wonderfilms
Regnbogapartý – Askja Films, Sagafilm, Ares Films og Booruffle Films
Þú og ég – Vintage Pictures
Tónlist
Atli Örvarsson – Hrútar
Hilmar Örn Hilmarsson – Nöldurseggurinn
Hilmar Örn Hilmarsson, Georg Hólm, Orri Páll Dýrason og Kjartan Dagur Hólm – The Show of Shows
Jóhann Jóhannsson, Hildur Guðnadóttir og Rutger Hoedemækers – Ófærð
Slowblow, Dagur Kári og Orri Jónsson – Fúsi