Hægt er að verða sér útí um stuttmynd Nönnu Kristínar Magnúsdóttur, Tvíliðaleik, á iTunes. Myndin kallast Playing With Balls á ensku og er í úrvali stuttmynda frá síðustu Toronto hátíð.
Tvíliðaleikur segir frá lesbíu í miðaldrakrísu sem ákveður að fylgja hjartanu og bregða út af vananum en verður fyrir vonbrigðum með ákvörðun sína.
Nanna Kristín Magnúsdóttir leikstýrði, skrifaði og framleiddi Tvíliðaleik. Í aðalhlutverkum eru Guðrún Gísladóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Jóhann Sigurðarson. Kvikmyndataka var í höndum Árna Filippussonar, Urður Hákonardóttir samdi tónlist og Valdís Óskarsdóttir og Sigurður Eyþórsson klipptu myndina.