Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Sao Paulo í Brasilíu stendur fyrir stærðarinnar norrænum fókus frá 22. október – 4. nóvember þar sem fjöldi kvikmynda frá Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi verða sýndar. Íslensku myndirnar eru 13 talsins.
Sjaldan hafa verið sýndar jafn margar íslenskar myndir við sama tækifæri á erlendri grund, segir í tilkynningu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Rúnar Rúnarsson leikstjóri og handritshöfundur Þrasta og Grímur Hákonarson leikstjóri og handritshöfundur Hrúta verða viðstaddir fókusinn í boði hátíðarinnar. Einnig verða framleiðendurnir Lilja Ósk Snorradóttir hjá Pegasus og Davíð Óskar Ólafsson hjá Mystery viðstödd fókusinn og munu halda ræður á umræðuvettvangi sem kallast „Meeting Brazil and the Nordics“.
Á umræðuvettvanginum mun fólk úr kvikmyndageirum Brasilíu, Íslands, Danmörku, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands sameinast og ræða nýja möguleika á meðframleiðslu ásamt nýjum dreifingarleiðum, sýningarmöguleikum og nýrri tegund sölu á listrænum kvikmyndum.
Myndirnar 13 verða sýndar í nokkrum flokkum og eru sem hér segir:
New Filmmakers Competition:
Þrestir (2015) – leikstjóri: Rúnar Rúnarsson
Blóðberg (2015) – leikstjóri: Björn Hlynur Haraldsson
Grafir & bein (2014) – leikstjóri: Anton Sigurðsson
International Perspective:
Hrútar (2015) – leikstjóri: Grímur Hákonarson
Sjóndeildarhringur (2015) – leikstjórar: Bergur Bernburg, Friðrik Þór Friðriksson
Fúsi (2015) – leikstjóri: Dagur Kári
Vonarstræti (2014) – leikstjóri: Baldvin Z
Afinn (2014) – leikstjóri: Bjarni Haukur Þórsson
Special Presentation:
Elfjall (2011) – leikstjóri: Rúnar Rúnarsson
Órói (2010) – leikstjóri: Baldvin Z
Mamma Gógó (2010) – leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson
Nói albínói (2003) – leikstjóri: Dagur Kári
Youth Festival:
Hetjur Valhallar – Þór (2011) – leikstjóri: Óskar Jónasson
Sjá nánar hér: Stór íslenskur kvikmyndafókus á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Sao Paulo – 13 myndir sýndar | FRÉTTIR | Kvikmyndamiðstöð Íslands