Klapptré tveggja ára í dag

klapptré-eins-ársKlapptré á afmæli í dag, vefurinn hefur verið í loftinu síðan 16. september 2013, eða í tvö ár. Ritstjórinn vill þakka kvikmyndagreininni fyrir gott samstarf og lesendum fyrir frábærar móttökur en lestur hefur aukist verulega milli ára.

Alls hafa birst rúmlega 1300 fréttir og pistlar á þessum tveimur árum og er óhætt að segja að vefurinn sé leiðandi í allri umfjöllun um íslenskar kvikmyndir og sjónvarp. Margoft hafa landsmiðlarnir tekið upp fréttir frá Klapptré og margt efni vefsins vakið mikla athygli og umræður.

Lestrartölur líta svona út eftir fyrstu tvö árin (meðaltal mánaðar í sviga):

  • Einstakir gestir: 101,785 (4,241  á mánuði)
  • Heimsóknir: 186,251 (7,760 á mánuði)
  • Flettingar: 301,635 (12,568 á mánuði)

Hér má láta sér líka við Facebook síðuna okkar og við erum líka á Twitter.

Ásgrímur Sverrisson
Ásgrímur Sverrisson
Ásgrímur Sverrisson er kvikmyndagerðarmaður og ritstjóri Klapptrés.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR