Hrútar Gríms Hákonarsonar verður opnunarmynd hinna árlega Norrænu bíódaga sem fram fara í Lübeck í Þýskalandi 4.8. nóvember næstkomandi.
Grímur og aðalleikararnir, Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson, verða gestir hátíðarinnar en myndin verður frumsýnd í þýskum kvikmyndahúsum í kjölfarið.
Hrútar munu taka þátt í fjölda kvikmyndahátíða á komandi hausti sem nánar verður sagt frá síðar.