Morgunblaðið ræðir við Dag Kára í kjölfar vals Fúsa sem fulltrúa Íslands í Kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs og þátttöku myndarinnar á BFI London Film Festival.
Þetta kemur meðal annars fram:
Aðspurður hvort að velgengni Fúsa hafi komið honum á óvart svarar Dagur Kári því játandi. „Þetta hefur komið mér að mörgu leyti á óvart en auðvitað er þetta eitthvað sem maður vonast alltaf eftir. Þetta er lágstemmd en áhrifarík mynd og maður var ekki alveg viss hvort hún næði í gegn. En hún virðist hafa gert það um allan heim.“
Eins og áður hefur sagt frá hefur Fúsi unnið fjölmörg verðlaun um allan heim. Fúsi sló til dæmis gegn í kvikmyndahátíðum í Berlín og í Kaupmannahöfn og vann síðan þrjú stór verðlaun á Tribeca kvikmyndahátíðinni fyrir besta leikara, handrit og kvikmynd.
Túlkun Gunnars Jónssonar á titilpersónunni Fúsa hefur þar að auki vakið mikla athygli og lof. Hann hlaut til dæmis sérstök verðlaun á króatísku kvikmyndahátíðinni Motovun Film Festival fyrir leik sinn í myndinni. Dagur Kári segir það sérstaklega ánægjulegt hversu mikla lukku leikur Gunnars hefur vakið. „Mér þykir alveg sérstaklega vænt um það. Ég skrifaði myndina fyrir hann og mér finnst hans leikur alveg meistaralegur. Ég verð alveg ótrúlega ánægður þegar að fólk kemur auga á það.“
Sjá nánar hér: Var ekki viss um að Fúsi næði í gegn – mbl.is