Stikla og plakat heimildamyndarinnar Sjóndeildarhrings eða Horizon eftir Berg Bernburg og Friðrik Þór Friðriksson hafa verið opinberuð. Myndin verður frumsýnd á Toronto hátíðinni í september.
Sjóndeildarhringur fjallar um listmálarann Georg Guðna Hauksson, sem lést aðeins fimmtugur að aldri árið 2011. Á fyrstu einkasýningu hans í Nýlistasafninu í Reykjavík árið 1985 birtist einstök sýn á íslenskt landslag í fjallamyndum hans. Sýningin markaði upphafið að ferli Georgs Guðna sem frumkvöðuls í endurreisn landslagsmálverksins.
Myndinni er stýrt af Friðrik Þór Friðrikssyni og Bergi Bernburg. Friðrik Þór framleiðir einnig myndina fyrir framleiðslufyrirtækið Sjóndeildarhring. Stjórn kvikmyndatöku og klipping er í höndum Bergs Bernburg og meðframleiðslufyrirtæki er hið danska ResearchGruppen. Myndin kemur í almennar sýningar á Íslandi í haust.