Þrestir Rúnars Rúnarssonar hefur verið valin til þátttöku í aðalkeppni San Sebastian hátíðarinnar sem fram fer 18.-26. september. Myndin verður að líkindum frumsýnd á Íslandi á RIFF en almennar sýningar hefjast 16. október.
Þrestir fjallar um 16 ára pilt sem sendur er á æskustöðvarnar vestur á firði til að búa með föður sínum sem hann hefur ekki séð í sex ár.
Rúnar Rúnarsson leikstýrir og skrifar handritið að Þröstum. Mikkel Jersin og Rúnar Rúnarsson eru aðalframleiðendur myndarinnar fyrir Nimbus Film. Framleiðandi er Birgitte Hald og meðframleiðendur eru Lilja Ósk Snorradóttir fyrir Pegasus og Igor Nola fyrir Mp Film. Í aðalhlutverkum eru Atli Óskar Fjalarsson, Ingvar E. Sigurdsson, Rakel Björk Björnsdóttir og Rade Serbedzija. Tónlist myndarinnar er samin af Kjartani Sveinssyni.