Greining | „Webcam“ opnar í níunda sæti, aðsókn eykst milli helga á „Hrúta“

Webcam-Anna-HafþórsdóttirWebcam Sigurðar Antons Friðþjófssonar er í níunda sæti eftir frumsýningarhelgina en Hrútar Gríms Hákonarsonar tekur góðan kipp uppávið eftir áttundu sýningarhelgi. Sýningum á Bakk er lokið en Albatross er enn í Háskólabíói.

Webcam, sem er frumraun Sigurðar og gerð án styrkja, fékk 349 gesti um helgina en alls 1.487 gesti með forsýningum. Gestir hafa látið ánægju sína í ljós á samfélagsmiðlum en opinber gagnrýni hefur ekki birst enn.

Aðsókn á Hrúta jókst um 20% yfir helgina miðað við síðustu helgi. Það teljast nokkur tíðindi nú þegar myndin er á áttundu sýningarviku. Myndin er í fjórða sæti aðsóknarlistans en 569 sáu myndina um helgina og alls 944 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 17.386 manns.

Fúsi Dags Kára er komin í 11.834 manns í heildaraðsókn og situr nú í 11. sæti eftir 17 sýningarhelgar. 88 sáu hana um helgina en tölur um aðsókn í vikunni liggja ekki fyrir.

Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 13.-19. júlí 2015:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
Webcam1.487 1.487
8Hrútar944 17.386
17Fúsi11.834
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR