Sala á Hrútum Gríms Hákonarsonar gengur vel á markaðinum í Cannes. Sölufyrirtækið New Europe Film Sales hefur nú tilkynnt um sölur á myndinni til níu markaða, sem bætast við fyrri sölur.
Löndin eru: Austurríki, Þýskaland, Sviss, Noregur, Ástralía, lönd fyrrum Júgóslavíu, Tyrkland, Japan og Skandinavía (utan Noregs og Íslands).
Samningar við breska og bandaríska aðila munu vera í burðarliðnum.
Sjá nánar hér: Cannes title ‘Rams’ finds more homes