Fúsi eftir Dag Kára verður frumsýnd í Háskólabíói og Smárabíói þann 27. mars. Stikla myndarinnar hefur nú verið opinberuð.
Myndin segir frá samnefndum manni sem er liðlega fertugur og býr einn með móður sinni. Líf hans er í afar föstum skorðum og lítið sem kemur á óvart. Hann minnir á unga sem hefur komið sér þægilega fyrir í hreiðrinu og hefur enn ekki haft kjark til að hefja sig til flugs. Þegar ung stúlka og kona á hans reki koma óvænt inn í líf hans, fer allt úr skorðum og hann þarf að takast á við ýmislegt í fyrsta sinn.
Dagur Kári leikstýrir og skrifar handritið að Fúsa, sem er framleidd af þeim Baltasar Kormáki og Agnesi Johansen fyrir Sögn.
Stiklu myndarinnar má sjá hér að neðan: