Ágúst Jakobsson er tökumaður myndarinnar Sword of Vengeance eins og Klapptré hefur áður skýrt frá. Myndin er framleidd af breska fyrirtækinu Vertigo Films og leikstjóri er James Weedon. Myndin er nú frágengin og má skoða stiklu hennar hér að neðan þar sem blóðið flýtur fagurlega.