Baldvin Z stýrir „Rétti 3“

Jóhanna Margrét Gísladóttir sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 og Baldvin Z leikstjóri.
Jóhanna Margrét Gísladóttir sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 og Baldvin Z leikstjóri.

Þriðja serían af sakamálaþáttunum Réttur hefst á Stöð 2 í haust og mun Baldvin Z leikstýra þáttunum. Handritið skrifa þeir Þorleifur Örn Arnarson og Andri Óttarsson. Sagafilm framleiðir.

Vísir segir frá:

Sagafilm og Stöð 2 hafa undirritað samning um framleiðslu á þriðju þáttaröðinni af Rétti. Tökur hefjast í apríl og fyrsti þátturinn verður sýndur á Stöð 2 í haust. Alls verða þættirnir, sem fjalla um lögfræðingana Loga og Brynhildi, níu talsins.

Leikstjóri verður Baldvin Z en kvikmynd hans, Vonarstræti, var vinsælasta íslenska myndin á síðasta ári. Handritshöfundar eru Þorleifur Örn Arnarsson, sem leikstýrði nú síðast Sjálfstæðu fólki í Þjóðleikhúsinu og þar áður Englum alheimsins við góðar undirtektir, og Andri Óttarsson sem er að stíga sín fyrstu skref sem handritshöfundur.

„Þetta leggst mjög vel í mig. Þetta er öðru vísi verkefni en ég hef áður tekið að mér. Það er bara spennandi að fara inn á nýjar brautir,“ segir Baldvin Z.„Ég verð að viðurkenna að ég horfi sjálfur ekki mikið á þessa tegund sjónvarpsþátta og það gerir það enn þá meira spennandi að sjá hvernig útkoman verður. Ég las handritið að fyrstu þremur þáttunum og mér fannst það meiriháttar skemmtilegt. Ástæðan fyrir því að ég sló til er bæði vegna handritsins og að málefnið sem þættirnir takast á við er mjög þarft, eða þessi duldi heimur á internetinu,“ segir hann og á við umræðuna sem hefur verið undanfarið um klám á netinu, þar á meðal á Snapchat.

Verið er að leggja lokahönd á handritið og óhætt er að segja að þáttaröðin byrji á háu nótunum því hún hefst á því að fjórtán ára stúlka finnst hengd á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Stærsta breytingin frá síðustu þáttaröðum er sú að Réttur 3 mun ekki gerast eins mikið í réttarsal og áður. Eitt mál verður ekki lengur rannsakað í hverjum þætti heldur mun þáttaröðin að mestu snúast um þetta eina mál.

Sem fyrr verða þau Magnús Jónsson í hlutverki Loga og Jóhanna Vigdís Arnardóttir í hlutverki Brynhildar.

Jóhanna Margrét Gísladóttir, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, er mjög ánægð með samninginn. „Þetta er mjög spennandi verkefni enda gengu hinar seríurnar vel. Það er flott að geta sýnt hágæða leikið íslenskt efni á Stöð 2,“ segir Jóhanna Margrét og bætir við að Réttur 3 verði flaggskip haustdagskrárinnar á Stöð 2.

Sjá nánar hér: Vísir – Baldvin Z leikstýrir Rétti 3.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR