Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum situr í fjórtánda sæti aðsóknarlistans eftir níundu sýningarhelgi, sem jafnframt er sú síðasta á árinu. Myndina sáu 220 manns í liðinni viku, þar af 161 um helgina. Myndin hefur fengið alls 32.528 gesti og er önnur vinsælasta íslenska mynd ársins. Aðsóknaruppgjör ársins verður birt í næstu viku.
AÐSÓKN VIKUNA 22.-28. des. 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
9 | Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum | 220 | 32.528 |