Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum fellur í fimmta sæti aðsóknarlistans eftir fimmtu sýningarhelgi. Fall milli vikna er nokkuð skart eða 68% en engu að síður sáu myndina 2.230 manns í liðinni viku, þar af 653 um helgina. Myndin hefur fengið alls 31.274 gesti. Vafi leikur á hvort hún nái vinsælustu Sveppamyndinni, Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið, sem út kom 2010 og var önnur í röðinni. Sú mynd fékk alls 37.506 gesti.
Afinn er nú í tólfta sæti eftir tíundu sýningarhelgi. Alls hafa 14.833 séð myndina frá upphafi, þar af 87 síðastliðna viku.
Grafir og bein er áfram í 14. sæti eftir fimmtu sýningarhelgi með alls 57 gesti í vikunni. Samtals hafa 3.594 séð myndina frá upphafi.
Borgríki 2 Ólafs de Fleur er einnig áfram í 16. sæti eftir sjöundu sýningarhelgi. 29 sáu myndina í nýliðinni viku. Heildaraðsókn frá upphafi nemur 11.024 manns.
AÐSÓKN VIKUNA 24.-30. nóv. 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
5 | Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum | 2.230 | 31.274 |
9 | Afinn | 87 | 14.833 |
5 | Grafir og bein | 57 | 3.536 |
7 | Borgríki 2 | 29 | 11.024 |