Heimildamyndin Heild var frumsýnd í Háskólabíó síðasta vor en nú gefst áhorfendum tækifæri á að streyma myndinni í gegnum Vimeo On Demand og einnig er hægt að kaupa myndina þar og niðurhala henni. Eftir tvær vikur verður síðan hægt að panta DVD diskinn á heimasíðu myndarinnar og þá verður hún einnig fáanleg í vel völdum verslunum.
Heild er náttúrustemmningsmynd í fullri lengd og án orða, þar sem Ísland er viðfangsefnið.
Stjórnandi myndarinnar er Pétur Kristján Guðmundsson. Hann hefur unnið að gerð myndarinnar í um þrjú ár og segir meðal annars þetta um gerð myndarinnar á vef framleiðslufyrirtækisins:
Hugmyndin var að sýna Ísland eins og það hefur aldrei sést áður, með því að byggja á mörgum þáttum „high-end“ kvikmyndatöku. Þessu var náð fram með því að mynda á þekktum og lítt þekktum stöðum víðsvegar um landið með aðferðum á borð við „motion-controlled time-lapse“, „super slow-motion“, loftmyndum og ýmsum öðrum. Með afar tímafrekri klippingu hefur verkið tekið þrjú ár, yfir 50.000 km hafa verið eknir en heildarkostnaður nemur aðeins rúmum 7 miljónum króna þar sem ég hef gert mest allt sjálfur.“
Framleiðslufyrirtækið á bakvið myndina kallast TrailerPark Studios og að því standa, auk Péturs, Arnþór Tryggvason, Unnur María Birgisdóttir og Helgi Karl Guðmundsson. Sena dreifir myndinni.
Sjá nánar hér: HEILD | Entirety | TrailerPark Studios.
Hér að neðan má sjá fimm mínútna bút úr myndinni: