Fjölmargar íslenskar kvikmyndir verða sýndar í kvikmyndahúsum á haustmánuðum.
París norðursins er þegar í gangi og situr nú í efsta sæti aðsóknarlistans. Afinn í leikstjórn Bjarna Hauks Þórssonar verður frumsýnd þann 25. september og Borgriki II: blóð hraustra manna birtist þann 17. október. Algjör Sveppi og Gói bjarga málunum kemur einnig í október og sömuleiðis Grafir og bein Antons Sigurðssonar sem verður frumsýnd 31. október.
Óvíst er enn með frumsýningar á Fúsa Dags Kára og Sumarbörnum Guðrúnar Ragnarsdóttur.
Afinn er gamandrama og segir frá Guðjóni sem lifað hefur öruggu lífi. Allt í einu blasir eftirlaunaaldurinn við honum á sama tíma og að erfiðleikar koma upp í hjónabandinu og við skipulagningu á brúðkaupi dóttur sinnar. Í örvæntingu sinni í leit að lífsfyllingu og tilgangi liggur leið hans meðal annars til Spánar, í heimspekideild Háskóla Íslands og á Landspítalann. Myndin er byggð á hinu geysivinsæla og samnefnda leikriti eftir Bjarna Hauk.
Sigurður Sigurjónsson fer með aðalhlutverkið en í öðrum helstu hlutverkum eru Þorsteinn Bachmann, Sigrún Edda Björnsdóttir, Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi jr) Tinna Sverrisdóttir og Jón Gnarr Jónsson (jr).