Vonarstræti heldur 6. sætinu á aðsóknarlista SMÁÍS eftir 10 vikur í sýningum. Alls sáu myndina 1.182 manns s.l. viku, þar af 308 um helgina. Samtals hefur myndin fengið 43.351 gesti frá því sýningar hófust.
Hross í oss er einnig áfram í Bíó Paradís og er á 47. sýningarviku. Myndin er komin í alls 15.241 gest.
AÐSÓKN VIKUNA 14.-20. JÚLÍ 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
10 | Vonarstræti | 1.182 | 43.351 |