Fjórðu kitluna úr Afanum í leikstjórn Bjarna Hauks Þórssonar má sjá hér að neðan. Myndin verður frumsýnd 25. september.
Sigurður Sigurjónsson fer með aðalhlutverkið en í öðrum helstu hlutverkum eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Steindi Jr. og Tinna Sverrisdóttir.
Myndin segir frá Guðjóni sem lifað hefur öruggu lífi. Allt í einu blasir eftirlaunaaldurinn við honum á sama tíma og að erfiðleikar koma upp í hjónabandinu og við skipulagningu á brúðkaupi dóttur sinnar. Í örvæntingu sinni í leit að lífsfyllingu og tilgangi liggur leið hans meðal annars til Spánar, í heimspekideild Háskóla Ísland og á Landspítalann.